Þingflokkur Framsóknarflokksins var reiðubúinn að setja Sigmund Davíð Gunnlaugsson af sem forsætisráðherra í apríl. Þetta sagði Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, í hádegisfréttum RÚV.
Þá sagði hún að það væri ömurlegt að Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og varaformaður flokksins, væri sakaður um svikabrigsl með formannsframboði sínu.
Sigurður Ingi sagði í Sprengisandi á Bylgjunni í gær að þingflokkurinn hefði verið búinn að taka ákvörðun um að setja forsætisráðherrann af á örlagaríkum þingflokksfundi í apríl. Hefði þingflokkurinn ákveðið að biðja varaformann flokksins og þingflokksformanninn að fara á fund Sjálfstæðismanna til að ræða áframhaldandi stjórnarsamstarf. Silja Dögg, sem skipar annað sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi, á eftir Sigurði Inga, lýsti atburðarásinni með svipuðum hætti í samtali við RÚV.
„Við í þingflokknum töldum þetta vera nauðsynlegt á þessum tíma vegna þess að við vildum halda áfram að vinna að okkar góðu verkefnum og reyna að klára þau áður en við færum í kosningar. Þannig að við vorum með þessa tvo valkosti, annars vegar að halda áfram samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn og freista þess að klára stór verkefni eins og húsnæðismálin, almannatryggingakerfið og fleira eða fara strax í þingrof og fara í kosningar strax í vor. Það taldi meirihluti þingflokksins ekki vera góðan kost á þessum tíma.“
Silja Dögg sagði að það væri ömurlegt að Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og varaformaður flokksins, væri sakaður um svikabrigsl með formannsframboði sínu. „Hann hefur staðið sig afskaplega vel sem forsætisráðherra. Hann hefur unnið vinnuna í umboði þingflokksins. Hann sóttist ekki eftir því að verða forsætisráðherra, hann ætlaði sér ekki að fara í formannsframboð, en vegna mikillar hvatningar hjá Framsóknarmönnum á öllu landinu, þá tók hann þessa ákvörðun í síðustu viku. Það var ekki með gleði í hjarta, heldur var hann eingöngu að sinna skyldu sinni gagnvart flokksmönnum,“ sagði hún.
Þá sagði Silja Dögg að Sigmundur Davíð gæti ekki neitað því að Wintris-málið væri ástæða þess að alþingiskosningunum hefði verið flýtt. Gunnar Bragi Sveinsson landbúnaðarráðherra og Sigmundur Davíð hafa báðir sagt að Sigurður Ingi hafi gengið á bak orða sinna með formannsframboði sínu.
Sigurður vék að meintum loforðum sem Sigmundur hefur sagt að Sigurður hafi gefið um að fara ekki gegn sér í þættinum í gær. Sagði Sigurður Sigmund vísa til samtals sem átti sér stað í kjölfar þess að Sigurður var kjörinn varaformaður 2013, en þá hafi menn gert því skóna að hann væri orðinn ógn við Sigmund.
Þeir áttu fund í kjölfarið þar sem Sigurður sagðist ánægður með varaformannsembættið og að hann hefði ekki hug á formannsembættinu. Síðan hefði mikið vatn runnið til sjávar og samstarf þeirra Sigmundar verið gott.
Í vor hafi hins vegar orðið trúnaðarbrestur milli formannsins og þingflokksins og boðað til þingflokksfundar kl. 13 umræddan 5. apríl. Þegar Sigurður mætti á fundinn var þingflokkurinn búinn að taka ákvörðun um að setja forsætisráðherra af og leita á fund Sjálfstæðisflokksins um áframhaldandi samstarf en Sigurður fékk tækifæri til að setja Sigmund inn í þróun mála þegar síðarnefndi kom til baka frá Bessastöðum.