Meirihluti atvinnuveganefndar samþykkti í morgun að frumvarp um heimild fyrir Landsnet til að reisa og reka raflínur milli Þeistareykjavirkjunar og iðnaðarsvæðisins á Bakka verði lagt fyrir alþingi fyrir þinglok.
Landvernd hafði farið fram á við Skipulagsstofnun að unnið yrði nýtt umhverfismat í ljósi breyttra forsenda þannig að ekki þyrfti jafn umfangsmiklar og stórar raflínur til að anna raforkuflutningi.
Frétt mbl.is: Fer fram á nýtt umhverfismat raflínu frá Kröflu að Bakka
Frétt mbl.is: Samþykktu frumvarp um raflínur að Bakka
„Við styðjum að frumvarpið verði afgreitt á þinginu eins og það kemur fyrir og við erum ekki að gera neinar breytingatillögur í veigamiklum atriðum. Nefnaráliti meirihlutans verður dreift í dag en minnihlutinn mun gefa út sérálit,“ sagði Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar í samtali við mbl.is eftir nefndarfundinn.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er með til umfjöllunar kæru Landverndar vegna útgáfu framkvæmdaleyfa sveitarfélaga fyrir lagningu raflínanna. Jón segir að lögin sem vísað er til í kærunni hafi ekki verið samin til að koma í veg fyrir framkvæmdir með þessum hætti.
„Náttúruverndarlög sem eru til skoðunar hjá úrskurðarnefnd umhverfismála voru sett árið 2015 en meining löggjafans var ekki að lögin yrðu til að stöðva framkvæmdir sem hafa hlotið öll tilskyld leyfi í löngu ferli.“
Spurður hvort frumvarpið verði afgreitt fyrir þinglok svaraði Jón með fullri vissu.
„Já, engin spurning.“