Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur veitt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu myndefni úr eftirlitsmyndavél áhaldahúss klúbbsins. Á myndunum sést rauð fólksbifreið aka fram hjá klúbbnum á milli 05:30 og 06:00 á laugardagsmorgun.
Upptökurnar eru í höndum lögreglunnar sem sér um frekari rannsókn málsins. Ekki hefur fengist staðfest hvort umrædd bifreið sé af gerðinni Kia Rio eins og sú sem leitað hefur verið að í tengslum við hvarf Birnu Brjánsdóttur.