„Þetta eru erfiðar aðstæður sem menn eru að vinna við. Á grunnu vatni, álandsvindur og stutt upp í fjöruna þarna,“ segir Jón Axelsson, skipstjóri á Álsey VE 2, í samtali við mbl.is. Áhöfnin á Álsey kom Víkingi AK 100 til aðstoðar í gærkvöld þegar nótin fór í skrúfuna og skipið rak að landi.
Bæði skipin voru við loðnuveiðar við Vestmannaeyjar og var Álsey nýkomin út á miðin og því heppilega staðsett til að koma Víkingi til hjálpar að sögn Jóns, enda fá skip úti á miðunum.
Nótin á Víkingi KA fór fyrst í hliðarskrúfuna með þeim afleiðingum að drapst á henni. Þá rak skipið að nótinni sem fór þá einnig í afturskrúfuna og Víkingur stefndi stjórnlaust að landi enda hvasst í veðri.
„Við komum bara út í gærkvöldi, við vorum að dæla úr nótinni úr Heimaey sem hafði fengið risakast og átti afgang,“ útskýrir Jón. Þá hafi Albert Sveinsson, skipstjóri Víkings, kallað eftir aðstoð Jóns og áhafnar hans á Álsey og beðið þá að gefa sér tog. „Og við brugðumst skjótt við bara og komum þeim til aðstoðar og vorum þarna hjá þeim á meðan þeir voru að tryggja að nótin væri komin inn.
Taug var strengd á milli skipanna til að koma í veg fyrir að Víking ræki stjórnlaust í land og segir Jón það sem betur fer hafa gengið vel. „Það er meira bara svona til að tryggja öryggi skipsins að tengja á milli,“ segir Jón.
„Við erum oft að lenda í svona að aðstoða menn. Þetta er sem betur fer ekki mjög oft en á löngum skipstjóraferli þá hefur þetta komið fyrir. Það var sérstaklega algengt hérna á árum áður, í gamla daga, þegar menn voru kannski ekki með hliðarskrúfur og svona,“ svarar Jón, spurður hvort hann hafi áður tekist á við uppákomu sem þessa. „Þetta bara fór sem betur fer mjög vel.“
Frá því að samið var í kjaradeilunni og verkfalli sjómanna lauk segir Jón veiðar hafa gengið ákaflega vel. „Það er búin að vera mokveiði, mikið af loðnu á ferðinni, gríðarlega mikið. Og núna er bara bræla, suðvestan bræla og við bara höldum sjó hérna og bíðum eftir að það lygni. Vonandi lygnir með kvöldinu þá getum við farið að kasta aftur,“ segir Jón, sem líkt og aðrir skipverjar er feginn að vera aftur kominn út á miðin.