Skipun eftirlitsnefndar sem tilkynnt var um í kjölfar sáttar Samkeppniseftirlitsins og Íslandspósts í febrúar er í vinnslu. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir það ekki óeðlilegt að ekki sé búið að skipa nefndina tíu vikum eftir að sáttin var kunngjörð.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir í samtali við mbl.is að nú sé verið að fara yfir mögulegar tilnefningar í nefndina. Hann segir það ekki óeðlilegt að skipun nefndarinnar taki smá tíma. „En við vonum að hún komist á laggirnar sem allra fyrst þar sem hún er brýn til þess að fylgja sáttinni eftir,“ segir Páll.
Félag atvinnurekenda vakti athygli á því á heimasíðu sinni í dag að tíu vikum eftir að sáttin náðist væri nefndin ekki enn skipuð og hvatti félagið til þess að bætt verði úr því hið fyrsta. Samkvæmt ákvæðum sáttarinnar hefur eftirlitsnefndin það hlutverk að fylgja sáttinni eftir, taka við kvörtunum og taka ákvarðanir í samræmi við fyrirmæli sáttarinnar. Nefndin er skipuð af Íslandspósti, en tilnefningu nefndarmanna skal bera undir Samkeppniseftirlitið til samþykktar eða synjunar. Tveir af þremur nefndarmönnum skulu vera óháðir Íslandspósti.
Samkeppniseftirlitið kynnti 17. febrúar aðgerðir til að styrkja samkeppnisaðstæður á póstmarkaði en Íslandspóstur hefur skuldbundið sig til þess að hlíta ítarlegum skilyrðum og gera breytingar á starfsemi sinni sem vinna gegn samkeppnishömlum.
Samkeppniseftirlitið taldi að rekja mætti samkeppnishömlurnar til einkaréttar á dreifingu áritaðra bréfa undir 50 g og sterkrar stöðu Íslandspósts á póstmarkaði og tengdum mörkuðum.
Með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins voru leiddar til lykta athuganir sem varða mögulegar samkeppnishindranir á póstmarkaði. Athuganir þessar áttu rætur að rekja til allmargra kvartana og ábendinga sem borist hafa frá keppinautum Íslandspósts á liðnum árum.
Miðuðu ráðstafanirnar að því að bæta samkeppnisumhverfið á þessu sviði til frambúðar. Um leið átti að vinna gegn því vantrausti sem grafið hefur um sig gagnvart Íslandspósti á póstmarkaði.
Meðal þess sem mælt er fyrir um er að tiltekin samkeppnisstarfsemi Íslandspósts verði ávallt rekin í aðskildum dótturfélögum. Í þessu skyni þarf Íslandspóstur að færa hraðpóstþjónustu sína út úr móðurfélaginu inn í aðgreint dótturfélag.
Þá er mælt fyrir um skýra aðgreiningu innan Íslandspósts á milli söluþáttar starfseminnar og kostnaðarúthlutunar og að skipuð verði sérstök eftirlitsnefnd sem fylgir sáttinni eftir, tekur við kvörtunum og tekur ákvarðanir í samræmi við fyrirmæli sáttarinnar.