Keppendur í WOW Cyclothon voru glaðir í bragði þegar þeir hjóluðu í gegnum Akureyri og inn Eyjafjörð fyrr í dag, en fréttaritari Morgunblaðsins á svæðinu smellti myndum af keppendum.
Eins og mbl.is greindi frá í morgun eru tvö lið í B-flokki í forystu, það eru lið Zwift og lið CCP. Team Cannondale GÁP Elite leiða A-flokk en Team Cycleworks og Hópbíla Húna eru ekki langt undan. Þá heldur Peter Colijn mikilli forystu í einstaklingskeppninni.
Hjólakraftur hjólaði allt Norðausturland í gær og í nótt og komið var niður Öxi í nótt og inná Austfirði. „Það var tekið gríðarlega vel á móti okkur á Egilsstöðum í nótt; kjötsúpa og með því í boði ungmannafélagsins Þrists,“ er haft eftir Vigni Þór Sverrissyni, einum foreldra og sjálfboðaliða sem fylgja krökkunum hringinn, í fréttatilkynningu.
Lið hjólakrafts eru nú komin fram hjá Höfn í Hornafirði. „Öxi gekk sömuleiðis vel og sælusvipur var á krökkunum sem fóru þar niður.“
Stór hópur fylgir krökkunum í Hjólakrafti en með þeim ferðast þrjár rútur, húsbíll og flutningabíll fyrir öll hjólin auk nokkurra minni bíla. Í liðum Hjólakrafts eru alls 110 keppendur í 11 liðum. Krakkarnir sem taka þátt eru á aldrinum 11-18 ára.