Sóley Kaldal, sem dvelur nú á grísku eyjunni Rhodos, varð vel vör við jarðskjálftann sem varð úti fyrir ströndum Grikklands í nótt. Jarðskjálftinn mældist 6,7 að styrk og kostaði tvo ferðamenn á eyjunni Kos lífið. Hundruð særðust þá í skjálftanum og skemmdir eru töluverðar bæði á Kos og eins á ferðamannastaðnum Bodrum í Tyrklandi.
„Við vorum öll frekar nýsofnuð,“ segir Sóley í viðtali við útvarpsstöðina K100. „Við vöknum síðan við það að húsið gjörsamlega leikur á reiðiskjálfi.“ Sóley, sem er öryggis- og áhættustjórnunarverkfræðingur hjá Almannavörnum og hefur m.a. verið að skoða náttúruhamfarir, segir skjálftann hafa verið frekar snarpan.
„Ég man eftir Suðurlandsskjálftanum, en þetta er í fyrsta skipti sem ég upplifi svona sterkan skjálfta,“ segir Sóley.
Hún er stödd á Rhodos til að að taka þátt í námskeiði og segir þau vera fjögur sem hafist við í gömlu grísku húsi sem stendur í fjallshlíð. Líkt og áður segir lék húsið á reiðiskjálfi og segir hún þeim hafa brugðið nokkuð.
„Ég var ekki alveg róleg. Ég veit að það geta komið eftirskjálftar og það er visst ferli sem fer í gang þegar náttúruhamfarir verða.“
Þau hafi hins vegar talið sig vera öruggust í húsinu þar sem þau dvelja, en það er aldagamalt steinhús. „Maðurinn minn er arkitekt og hann horfði á húsið hreyfast með skjálftanum, þannig að það er líkast til skásti staðurinn, að vera inni í skjálftanum.“
Uppi í fjallshlíðinni hafi þau heldur ekki þurft að hafa áhyggjur af flóðbylgju, en flóðbylgjuviðvörun var gefin út og kom flóðbylgja upp að ströndum Tyrklands í nótt. „Það er nokkuð sem maður verður alltaf að passa ef maður lendir í jarðskjálfta nálægt sjó, að þá getur verið von á flóðbylgju.“
Oddný Arnarsdóttir, sem er með fjölskyldunni í fríi á Kos, varð einnig vel vör við skjálftann. Er mbl.is ræddi við hana fyrr í morgun sagði hún hótelið hafa leikið á reiðiskjálfi, en fjölskyldan eyddi nóttinni á sólbekkjum í sundlaugargarðinum.
Skjálftans varð líka vart í tyrknesku borginni Bodrum og segir BBC nokkra hafa slasast þar er þeir reyndu að flýja skjálftann.