United Silicon setur í gang eftir helgi

Frá kísilmálmsmiðjunni United Silicon í Helguvík.
Frá kísilmálmsmiðjunni United Silicon í Helguvík. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Regnbogaofn kísilmálmsmiðju United Silicon verður ræstur strax eftir helgi að sögn Kristleifs Andréssonar, upplýsingafulltrúa United Silicon. Viðgerðir hafa staðið yfir að undanförnu eftir að 1.600 gráðu heitur kísilmálmur lak niður á gólf svo skemmdir urðu á gólfi og rafmagni.

„Viðgerðir eru langt komnar og aðeins frágangurinn eftir,“ segir Kristleifur í samtali við mbl.is. Hann segir það fyrst og fremst prófanir sem séu eftir þar sem ákveðnar breytingar hafi verið gerðar á búnaðinum.

Spurður um stöðu milljarðagreiðslu United Silicon til ÍAV verktaka segist Kristleifur ekki vilja tjá sig um málið að öðru leyti en að það sé í höndum lögfræðinga fyrirtækisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert