Kona er látin og tveir menn eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir alvarlegt atvik á Hagamel í Vesturbæ Reykjavíkur nú í kvöld. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Grímur segir rannsókn málsins á algjöru frumstigi og vinna sé nú í gangi á vettvangi, en segist að öðru leyti ekki geta tjáð sig frekar um málið að svo stöddu.
Sírenuvælið í lögreglubílum og tveimur sjúkrabílum fór ekki fram hjá íbúum Vesturbæjar rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Staðfestu sjónarvottar við blaðamann Morgunblaðsins nú í kvöld að sérsveitin hafi verið kölluð til.
Að sögn ljósmyndara mbl.is á vettvangi voru tveir lögreglubílar fyrir utan húsið undir miðnætti og lögreglumenn að störfum fyrir innan, en mennirnir verða væntanlega yfirheyrðir í nótt eða í fyrramálið.
Samkvæmt íslenskum lögum hefur lögreglan heimild til að halda mönnunum í sólarhring, en að þeim tíma loknum verður hún að fara fram á gæsluvarðhald eða láta þá lausa úr haldi. Eftir það hefur dómari sólarhring til viðbótar til að ákveða hvort hann fallist á gæsluvarðhaldsbeiðnina.