Konan sem lést í kjölfar líkamsárásar í vesturbæ Reykjavíkur síðastliðið fimmtudagskvöld hét Sanita Brauna, 44 ára, frá Lettlandi.
Hún lætur eftir sig þrjú börn og foreldra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Erlendur karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um að hafa veitt Brauna áverka sem leiddu til dauða hennar.
Krufningu á líki konunnar er lokið. Niðurstöðu er að vænta fyrir vikulok að sögn Gríms Grímssonar yfirlögregluþjóns. Í samtali við mbl.is segir hann hins vegar að bráðabirgðaniðurstöður gætu legið fyrir á morgun eða hinn. Ekki liggi fyrir hvort eitthvað verði gefið út um dánarorsök konunnar þegar þær niðurstöður berast.