Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar af vettvangi eftir umferðarslyss á Biskupstungnabraut. Einn þeirra er alvarlega slasaður.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur verið kölluð á vettvang, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi.
Um klukkan 11.00 barst til Neyðarlínu tilkynning um árekstur fólksbifreiðar og sendibifreiðar á gatnamótum Grafningsvegar og Biskupstungnabrautar. Veginum var lokað í kjölfarið og óskað eftir því að Landhelgisgæslan myndi senda þyrlu á vettvang til að flytja slasaða á sjúkrahús.