Búið er að opna fyrir umferð á Suðurlandsvegi við Hádegismóa þar sem umferðarslys varð í morgun.
Alls voru þrír fluttir á sjúkrahús eftir slysið sem varð á mótum Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar um áttaleytið í morgun. Um tveggja bíla árekstur var að ræða og er ökumaður annarrar bifreiðarinnar með töluverða áverka. Hinir tveir eru minna slasaðir.
Miklar tafir urðu á umferð á meðan lögregla og sjúkralið athöfnuðu sig á vettvangi.