Hlýnar talsvert á landinu

Það verður frostlaust um land allt næstu þrjá daga.
Það verður frostlaust um land allt næstu þrjá daga. mbl.is/Eggert

Það hlýnar talsvert á landinu í dag og frostlaust verður um land allt næstu þrjá daga, meira og minna að sögn Veðurstofu Íslands.

Það verður allhvöss og á köflum hvöss suðaustanátt en fremur lítil úrkoma fylgir og ætti að vera alveg þurrt norðanlands.

Síðan er útlit fyrir að kólni aftur um og eftir miðja viku með norðaustanátt og éljum.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert