Sex metra Bola-dósin, sem lýst var eftir fyrr í dag, er komin í leitirnar. „Kæru vinir Boli er fundin takk elskurnar,“ skrifar Böðvar Guðmundsson á Facebook en hann lýsti eftir dósinni upp úr hádegi.
Dósin hvarf sporlaust af svæði Hestamannafélagsins Spretts á dögunum. Böðvar biðlaði til íbúa að hafa augun opin og sú beiðni skilaði árangri.
Vegfarandi sem var að skokka í Gufunesi kom auga á dósina og hringdi í Böðvar. „Hann sá hana einhvers staðar þarna á bak við. Núna erum við á leiðinni að endurheimta dósina okkar,“ segir kátur Böðvar.
Hann hefur ekki hugmynd um hver kom dósinni þangað. „Við vitum ekkert hvernig hún endaði þarna og höfum engar vísbendingar um það.“