Fremur hæg sunnanátt í dag og víða léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Skýjað í öðrum landshlutum en þurrt að mestu.
Sunnan 8-13 m/s og rigning verður um tíma á morgun, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 3 til 10 stig að deginum. Hægari vindur og úrkomulítið annað kvöld.
Áfram er útlit fyrir suðlæga átt á miðvikudag, milt veður og vætusamt á Suður- og Vesturlandi, samkvæmt upplýsingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.