Strákarnir í Kaleo vinna nú að plötunni sem kemur í kjölfarið á hinni geysivinsælu A/B sem kom út fyrir tæpum tveimur árum. Sveitin hefur að undanförnu verið í upptökum og hér má sjá myndir af ferlinu í sögufrægum hljóðverum sem Daníel Ægir Kristjánsson bassaleikari sveitarinnar tók.
Í síðasta mánuði var sveitin m.a. í hinu sögufræga RCA hljóðveri í Nashville en einnig í gamla hljóðverinu hans Tupac Shakur og hljóðveri Vance Powells sem er mikill reynslubolti í upptökubransanum. Síðustu dögum hafa Mosfellingarnir þó eytt í S-Ameríku þar sem þeir hafa komið fram á tónleikum.
Rubin í gítartöku. Búinn að vefja handklæði utan um hálsinn til að ná fram rétta hljómnum.
Ljósmynd/Daníel Ægir Kristjánsson
Vance Powell er einn þeirra upptökustjóra sem Kaleo menn hafa unnið með að undanförnu. Hann er þekktastur fyrir störf sín með Jack White og hefur hlotið fern Grammy verðlaun.
Ljósmynd/Daníel Ægir Kristjánsson
Mike Elizondo fylgist með Rubin. Hann hefur unnið að fjölmörgum verkefnum með fjölbreyttum hópi listamanna. Allt á milli Dr. Dre og Eric Clapton.
Ljósmynd/Daníel Ægir Kristjánsson
Gítarbretti í höndunum á Rubin. Hljómurinn ætti að passa vel við klassíska blúsrokkið hjá Kaleo.
Ljósmynd/Daníel Ægir Kristjánsson
Stúdíóvinna er þolinmæðisverk.
Ljósmynd/Daníel Ægir Kristjánsson
Það er mikilvægt að hafa gaman að hlutunum.
Ljósmynd/Daníel Ægir Kristjánsson
Davíð Antonsson Crivello sér um trommuleikinn í Kaleo.
Ljósmynd/Daníel Ægir Kristjánsson
Upptökusalurinn í hinu sögufræga RCA hljóðveri í tónlistarborginni Nashville er rúmgóður.
Ljósmynd/Daníel Ægir Kristjánsson
Jökull leitar að rétta hljómnum.
Ljósmynd/Daníel Ægir Kristjánsson
Powell fer yfir hlutina á gömlu 24 rása segulbands-upptökutæki.
Ljósmynd/Daníel Ægir Kristjánsson