Björgunarsveitirnar sem leituðu að manni í Ölfusá í nótt og í morgun eru flestar búnar með þau verkefni sem þær fengu úthlutuð fyrir hádegi.
Þær eru núna í hádegismat.
Að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, verður ákveðið með næstu skref í leitinni eftir eina til tvær klukkustundir.
Um 70 manns frá 12 björgunarsveitum hafa tekið þátt í leitinni að manninum, sem talinn er hafa stokkið út í Ölfusá um þrjúleytið í nótt.
Einhverjar björgunarsveitir sem höfðu leitað að manninum voru sendar að Þingvallavatni þar sem tveggja manna var leitað en þeir eru báðir fundnir og eru á leiðinni á Landspítalann.