Eftirvæntingin var gríðarmikil fyrir leik Íslands og Argentínu á HM í knattspyrnu á laugardag og horft var á leikinn víða um land. Meðal áhorfenda á Hrafnseyri voru þau Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Ljósmyndarinn Haukur Sigurðsson var á staðnum og náði þessari ljósmynd á einu af æsispennandi augnablikum leiksins. Glöggir geta leikið sér að því að giska á það hvað var að gerast á vellinum í Moskvu þegar Haukur smellti af.