Búið er að opna Ölfusárbrú fyrir umferð, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Upphaflega var gert ráð fyrir að hún myndi ekki opna fyrr en á mánudag. Opnun fyrir áætlaðan tíma er góðu skipulagi og samvinnu þeirra sem koma að verkinu að þakka, er haft eftir Aroni Bjarnasyni, deildarstjóra Vegagerðarinnar, í Morgunblaðinu í dag.