Enn logar eldur í iðnaðarhúsnæði á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði og hefur slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu verið með vakt á staðnum í alla nótt. Verulega hefur þó dregið úr umfanginu og voru tveir menn á vakt þar í nótt á meðan veðrið var sem verst.
Rúnar Helgason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að staðan verði metin í birtingu. „Það logar enn þó lítið sé,“ segir hann og kveðst vona að slökkviliðið nái þá að setja upp áætlun um að slökkva endanlega í eldinum í dag.
Eldurinn sem logar, er í rými sem eldur hefur verið í frá því á aðfaranótt laugardags og hefur því verið mikill eldmatur á því svæði.
Spurður hvort að lögregla fái brunavettvanginn afhentan til rannsóknar í dag, segist Rúnar telja það líklegt. „Ég sagði nú í gær að maður væri hættur að spá fyrir um endalokin á þessu, en ég trúi þó eiginlega ekki öðru.“
Eldurinn kviknaði á ellefta tímanum á föstudagskvöld og breiddist ákaflega hratt út. Aðstæður voru eldfimar. Um var að ræða harðviðarverkstæði og ofan á það blés rok allhressilega fram eftir nóttu. Um sextíu slökkviliðsmenn voru þar að störfum þá nótt. Þegar mest lét í gær slökkviliðsmennirnir fimmtán, en á tíunda tímanum í gærkvöldi voru þeir orðnir fimm.
Töluvert annríki var þá hjá slökkviliðinu í nótt vegna vatnsveðurs og sjúkraflutninga, en töluvert var um að vatn flæddi inn í kjallara og fyndi sér leið í gegnum þök í vatnsveðrinu. „Þetta var frekar lítið á öllum stöðum, en engu að síður hvimleitt fyrir viðkomandi,“ segir Rúnar og kveður tilkynningar um vatnstjón hafa borist allt frá Völlunum í Hafnarfirði og yfir í efstu hverfi Mosfellsbæjar.