Rannsókn lögreglu á neðri hæð hússins á Hvaleyrarbraut 39, sem brann um helgina, er nú lokið og hefur hún verið afhent tryggingafélagi eigenda. Þetta segir Skúli Jónsson stöðvarstjóri á lögreglustöðinni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is.
Rannsóknardeild lögreglunnar í Hafnarfirði og tæknideild lögreglu voru að störfum á brunastaðnum frá því fyrir hádegi í dag og mun vinna lögreglu á efri hæðinni halda áfram á morgun.
„Þetta snýr að tæknideildinni og störfum hennar og þeir reikna með að vera að á morgun líka. Þannig er staðan núna,“ segir Skúli.
Lögregluvakt var í alla nótt á Hvaleyrarbrautinni, en lögregla fékk brunavettvanginn afhentan um kvöldmatarleytið í gær eftir að slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins tæpum tveimur sólarhringum eftir að tilkynning um hann barst.
Eldurinn kviknaði á efri hæð Hvaleyrarbrautar 39 á ellefta tímanum á föstudagskvöld þar sem harðviðarverkstæði var til húsa. Það var svo klukkan 19.10 í gærkvöldi sem slökkvilið lauk störfum á vettvangi og afhenti lögreglu staðinn.
Lögregla biðlar nú til þeirra sem kunna að hafa undir höndum myndefni af fyrstu stigum brunans að hafa samband, en myndir sem sýna hvar eldurinn kom fyrst upp geta aðstoðað við rannsókn á upptökum brunans.
Eru þeir sem kunna að luma á slíkum myndum beðnir að hafa samband við lögreglu í gegnum Facebook, netfangið logregla@logregla.is, eða með því að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.