Unnur Brá tekur á ný sæti á Alþingi

Unnur Brá Konráðsdóttir tekur á ný sæti á Alþingi í …
Unnur Brá Konráðsdóttir tekur á ný sæti á Alþingi í fjarveru Ásmundar Friðrikssonar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Unnur Brá Konráðsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, tekur í dag sæti á Alþingi fyrir Ásmund Friðriksson, alþingismann flokksins úr Suðurkjördæmi.

Unnur Brá starfar sem aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, skipuð af forsætisráðherra í fyrra, og var henni falið að sinna verkefnisstjórn við endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Hún var þingmaður Sjálfstæðisflokksins 2009 til 2017 og gegndi embætti forseta Alþingis árið 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert