Búið er að slökkva eld sem kom upp í sumarhúsi við Tjarnargötu, Grafningsmegin við Þingvallavatn á fimmta tímanum. Húsið verður vaktað fram eftir kvöldi til að tryggja að engar glæður lifi þar enn.
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, segir að slökkviliðsmenn hafi þurft að rífa klæðningu af veggjum innanfrá og gólffjalir til að komast að eldinum en mikill reykur var í húsinu.
Töluverðar reykskemmdir urðu í húsinu en Pétur segir að betur hafi farið en á horfðist. Talið er að kviknað hafi í út frá kamínu en nánari rannsókn á upptökum eldsins fer fram á morgun.