Þorsteinn Már Baldvinsson hefur óskað eftir því að fara í „ótímabundið leyfi“ frá störfum sínum sem stjórnarformaður Síldarvinnslunnar. Þetta staðfestir Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri fyrirtækisins í samtali við mbl.is, en áður var greint frá í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Ingi Jóhann Guðmundsson tekur við stjórnarformennsku í fyrirtækinu í stað Þorsteins Más og Halldór Jónsson kemur nýr inn í stjórnina. Samherji er stærsti eigandi Síldarvinnslunnar og á þar um það bil 45% hlut.
Ingi Jóhann, nýr stjórnarformaður, er framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Gjögurs og annar stærstu eigenda þess ásamt systur sinni Önnu Guðmundsdóttur.
Sex dagar eru síðan fréttaskýringarþátturinn Kveikur fjallaði um viðskipti Samherja í Namibíu. Síðan þá hefur Þorsteinn Már stigið til hliðar sem forstjóri Samherja, þar sem Björgólfur Jóhannsson tók við starfi hans.
Í dag var einnig greint frá því í færeyskum fjölmiðlum að hann hefði sagt sig úr stjórn útgerðarfélagins Framherja í Færeyjum, þar sem hann var stjórnarformaður.