Hægar og mildar suðaustanáttir, 3-10 m/s, leika um landið í dag. Þeim fylgir dálítil væta hér og þar, en þó verður að mestu þurrt fyrir norðan og austan. Hiti verður á bilinu 0 til 8 stig, hlýjast syðst.
Á morgun hallast vindur síðan til norðausturs. Áfram verður svipað veður þótt hiti falli víða niður fyrir frostmark norðaustanlands.
Í byrjun næstu viku er útlit fyrir að norðaustanáttin haldist áfram og létti smám saman til, en kólni þó heldur í veðri.