Unnið er að sameiningu DV og Fréttablaðsins og búist er við niðurstöðu á þeim þreifingum á morgun. Þetta kemur fram á Kjarnanum. Þetta yrði eina fjölmiðlasamsteypa landsins sem miðlar efni í gegnum sjónvarp, prent- og netmiðla.
Samkvæmt heimildum Kjarnans er unnið að því að sameina Frjálsa fjölmiðlun, útgáfufélag DV og tengdra miðla, og Torg, útgáfufélag Fréttablaðsins og tengdra miðla.
Helgi Magnússon fjárfestir er eigandi Torgs útgáfufélags Fréttablaðsins. Í haust samþykkti samkeppniseftirlitið samruna Fréttablaðsins og Hringbrautar en greint var frá fyrirhuguðum sameiningaráformum 18. október.