„Spennandi tímar fram undan“

Kristjón Kormákur Guðjónsson er ritstjóri vefmiðlanna frettabladid.is og hringbraut.is
Kristjón Kormákur Guðjónsson er ritstjóri vefmiðlanna frettabladid.is og hringbraut.is Ljósmynd/Aðsend

Kristjón Kormákur Guðjónsson hefur verið ráðinn ritstjóri yfir vefmiðlunum frettabladid.is og hringbraut.is ásamt Sunnu Karen Sigurþórsdóttur. Á vef Hringbrautar birtist áfram efni tengt sjónvarpi. 

Kristjón Kormákur var ritstjóri Hringbrautar áður en miðillinn sameinaðist Fréttablaðinu í haust við kaup Torgs ehf. á Hringbraut.

„Það eru mjög spennandi tímar fram undan og fullt af góðu fólki sem við vinnum með. Það eru mörg tækifæri í að nýta efni á milli miðla. Þetta á eftir að taka á sig skýrari mynd því það er unnið að því að sameina þessa miðla,“ segir Kristjón Kormákur.  

Engar breytingar eru á ritstjórum Fréttablaðsins sem eru áfram Davíð Stefánsson og Jón Þórisson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert