„Staðan er sú að virknin er enn í gangi á svipuðum slóðum. Það varð skjálfti þarna um ellefu sem fannst rosalega vel,“ segir Kristín Jónsdóttir, hópstjóri vöktunar og náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands, en vísindaráð almannavarna fundaði vegna skjálftahrinunnar á Reykjanesskaga í hádeginu.
Jarðskjálfti 3,8 að stærð varð 11.05 en upptök hans voru á sjö kílómetra dýpi, 1,2 kílómetra suð-suðvestur af Keili. Kristín segir að hugsanlega sé skjálftinn aðeins grynnri en aðrir og það geti skýrt hvers vegna hann fannst mjög vel á höfuðborgarsvæðinu.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu fundu fáa skjálfta síðdegis í gær og gærkvöldi en Kristín segir hrinuna í fullum gangi.
„Það koma svona tímabil þar sem er mjög lítil virkni inn á milli og svo tekur hún sig upp að nýju. Það er alveg rétt að frá hádegi í gær dettur hún aðeins niður og svo kemur þessi skjálfti í nótt og aftur í morgun. Þetta er hviðótt og enn í gangi.“
Kristín segir að áfram séu mestu jarðhræringarnar við Keili og svo sjáist einhver virkni við Trölladyngju, örlítið nær höfuðborgarsvæðinu.
Í greiningu frá eldfjallafræði- og náttúruvárhópi Háskóla Íslands frá því í gær kemur fram að komin séu tvö sterk svæði þar sem gossprunga geti opnast. Annars vegar við Keili og hins vegar við Trölladyngju/Hlöðuvelli.
„Við höfum ekki séð nein merki um kvikuhreyfingar nær Trölladyngju en þetta er eitt af því sem við erum að fylgjast með. Auðvitað er mjög mikilvægt að við fáum klárt svar við þeirri spurningu hvort það sé nokkuð að opnast þar líka. Enn sem komið er erum við ekki komin með nein svör,“ segir Kristín.
Von er á nýjum gervihnattamyndum af svæðinu í kvöld og segir Kristín að þær verði skoðaðar á morgun.