Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, lýsti því yfir á landsfundi hreyfingarinnar í dag að hún muni taka sæti á lista í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar sem fram fara í haust.
Lilja Rafney bauð sig fram í oddvitasæti í forvali í apríl en varð að lúta í lægra haldi fyrir Bjarna Jónssyni, varaþingmanni og sveitarstjórnarmanni VG í Skagafirði.
Landsfundur fagnaði ákvörðun Lilju Rafneyjar með lófaklappi. Lilja Rafney er stofnfélagi í VG og sagðist hún á fundinum, undir liðnum almennar stjórnmálaumræður, vilja vinna áfram að góðum verkum fyrir hreyfinguna.