Tæplega 3.500 manns hafa sótt Covid-passann svokallaða, rafrænt vottorð fyrir bólusetningu gegn Covid-19.
Vottorðið er aðgengilegt á Heilsuveru og tók gildi seint í gærkvöldi. Töluverð eftirvænting virðist hafa verið eftir QR-kóðakerfinu en um hádegisbil höfðu 3.419 sótt sér vottorð samkvæmt upplýsingum frá Inga Steinari Ingasyni, sviðsstjóra rafrænna lausna hjá embætti landlæknis. „Ég veit ekki hvort allir þessir eru að fara til útlanda í næstu viku eða hvort menn eru bara að prófa,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Vottorðið tekur gildi sjö dögum frá lokum bólusetningar. Það gæti þó breyst þar sem stefnan er að hafa sömu viðmið og önnur Evrópulönd.
Í næstu viku verður hægt að nálgast QR-kóða fyrir vottorð vegna fyrri sýkingar af Covid-19 að sögn Inga Steinars.
Um er að ræða tilraunaverkefni Evrópusambandsins með samræmt dulkóðað vottorðakerfi. Kerfið hefur ýmsa kosti og mun það til dæmis stytta afgreiðslutíma á flugvöllum og koma algjörlega í veg fyrir fölsun á vottorðum.