Spurður út í atvik úr æsku í yfirheyrslunni

Mennirnir eru grunaðir um framleiðslu vopna og skipulagningu árásar á …
Mennirnir eru grunaðir um framleiðslu vopna og skipulagningu árásar á árshátíð lögreglumanna sem á að fara fram í næstu viku. mbl.is/​Hari

Einn þeirra grunuðu í máli sem varðar skipulagningu hryðjuverkaárásar sætti afskiptum af hendi sérsveitar í æsku og hefur það atvik verið til umræðu í yfirheyrslum yfir manninum. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Atvikið átti sér stað árið 2009 og var umfjöllunarefni í fjölmiðlum á þeim tíma. 

Þótti ekki tilefni til frekari rannsóknar

Í frétt mbl.is af málinu segir að lögregla hafi verið með mik­inn viðbúnað og lokað hluta götunnar. Drengurinn hafi verið króaður af og afvopnaður. 

Varðstjóri lögreglunnar hafi þá sagt að engir eftirmálar yrðu á málinu. Leik­fangið hafi ekki þess eðlis, t.d. svo ná­kvæm eft­ir­mynd af raun­veru­legu vopni, að ekki mætti vera með það á göt­um úti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert