Harpa stýrir Nýjum orkukostum Orkuveitunnar

Harpa Pétursdóttir hefur verið ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta hjá Orkuveitunni.
Harpa Pétursdóttir hefur verið ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta hjá Orkuveitunni. Ljósmynd/Jóhanna Rakel

Harpa Pétursdóttir hefur verið ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta hjá Orkuveitunni og hefur hún þegar hafið störf. Um er að ræða nýja einingu hjá Orkuveitunni sem er hluti af sviði rannsókna og nýsköpunar.

Hlutverk rannsókna og nýsköpunarsviðs er að gæta auðlinda og framtíðar auðlindaöflun til að komandi kynslóðir geti búið við sömu lífsgæði og við gerum í dag.

Nýir Orkukostir vinna markvisst að stefnuáherslunni „Aukið framboð og sjálfbærar lausnir“. Einingin er því forystuafl í orkuskiptum og þróun í átt að kolefnishlutlausri framtíð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni.

Viðtæk reynsla í orkugeiranum

Harpa Pétursdóttir er lögfræðingur að mennt frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað í orkugeiranum frá árinu 2010 þegar hún hóf störf hjá Orkustofnun. Þar starfaði hún sem lögfræðingur um níu ára bil, annars vegar sem verkefnisstjóri og lögfræðingur raforkueftirlits og hins vegar sem lögfræðingur auðlindanýtingar stofnunarinnar.

Frá árinu 2022 hefur Harpa starfað hjá Orku náttúrunnar, einu af dótturfélögum Orkuveitunnar, sem stjórnandi haghafa og stjórnsýslu auk þess að sitja í framkvæmdastjórn félagsins.

Harpa hefur einnig reynslu af orkumálum frá störfum sínum hjá lögmannsstofunni BBA Legal þar sem hún sinnti orkumálum fyrir hönd stofunnar. Þá hefur hún jafnframt sinnt stundakennslu við lagadeildir Háskóla Íslands og Háskólans á Bifröst auk þess sem hún hefur setið í ýmsum nefndum og stjórnum.

Árið 2016 stofnaði Harpa félagið konur í orkumálum þar sem hún var stjórnarformaður í sex ár. Hún er jafnframt varaformaður Nordic Energy Equality Network, er viðurkenndur stjórnarmaður og hefur öðlast verðbréfaréttindi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert