Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í eins ár fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlku en brotin áttu sér stað árunum 2002-2004 þegar stúlkan var á níunda og tíunda ári, að því er kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins.

Þar kom fram, að móðir stúlkunnar, sem er stjúpdóttir mannsins, lagði fram kæru á hendur honum í fyrrahaust. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 400 þúsund krónur í miskabætur og allan sakarkostnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert