Siglt til Eyja á hálftíma árið 2010

Líkan Siglingamálastofnunar af ferjuhöfn í Bakkafjöru
Líkan Siglingamálastofnunar af ferjuhöfn í Bakkafjöru mbl.is/Ásdís

Á ríkisstjórnarfundi í morgun kynnti Sturla Böðvarsson samgönguráðherra tillögur sínar um samgöngur til Vestmannaeyja, í ljósi lokaskýrslu starfshóps sem fjallaði um framtíðarmöguleika í samgöngum við Vestmannaeyjar, segir í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu.

Fram kemur að samgönguráðherra hafi lagt til á ríkisstjórnarfundinum að ferjulægi í Bakkafjöru verði framtíðartenging milli Vestmannaeyja og lands. Lokið verði við nauðsynlegar rannsóknir og undirbúning svo framkvæmdir geti hafist svo fljótt sem auðið sé. Áætlað sé að á næsta ári fari fram umhverfismat, hönnun og öflun annarra leyfa vegna framkvæmdarinnar. Gera megi ráð fyrir að heildar framkvæmdatími við ferjuhöfn og tengd mannvirki sé 2 - 2 1/2 ár frá því að lokahönnun og umhverfismat liggi fyrir. Áætlaður smíðatími nýrrar ferju er 15-18 mánuðir. Miðað við þessar tímaáætlanir verður hægt að taka höfnina í notkun árið 2010.

„Að teknu tilliti til þeirrar niðurstöðu starfshópsins að ekki sé réttlætanlegt að leggja til að farið verði í frekari rannsóknir varðandi gerð jarðganga milli lands og Vestmannaeyja og þess hversu fýsilegur kostur ferjulægi í Bakkafjöru er miðað við þær rannsóknir sem unnar hafa verið var ekkert því til fyrirstöðu að taka ákvörðun í málinu,“ segir samgönguráðherra. „Það verður ánægjulegt að sigla milli lands og Eyja á hálftíma árið 2010“.

Þangað til verður hugað að því hvernig best er hægt að tryggja hámarks nýtingu á núverandi samgönguleiðum með þarfir Vestmannaeyinga og ferðamanna að leiðarljósi. Í því sambandi mun samgönguráðherra eiga frekari viðræður við fulltrúa bæjarstjórnar Vestmannaeyja og fara nánar yfir stöðu þeirra mála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert