Brotist inn í bíla

Lögreglunni í Reykjavík bárust fjórar tilkynningar um innbrot í bíla í gær. Úr tveimur þeirra var stolið verkfærum en sími og tölva eru meðal þeirra muna sem saknað er úr hinum bílunum. Þá var farið inn í kjallaraherbergi í höfuðborginni og tölvu stolið. Einnig var tilkynnt atvik þar sem ökumaður hafði ekki greitt fyrir eldsneyti á bensínstöð en slík tilfelli hafa verið allmörg í sumar. Að þessu sinni telur lögreglan að erlendur ferðamaður hafi átt hlut að máli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert