Rjúpnaskyttur fundust heilar á húfi

Að sögn lögreglunnar á Blönduósi hafa tvær rjúpnaskyttur, sem leitað hafði verið frá því klukkan 16 í dag, fundist heilar á húfi. Þær fundust í Sauðadal, sem er milli Svínadals og Vatnsdals, klukkan 21:20 í kvöld. Sjö björgunarsveitarbílar voru kallaðir út til leitar á svæðinu.

Mennirnir voru slagtogi með tveimur öðrum rjúpnaskyttum en þeir ákváðu að skipta liði. Þeir ætluðu svo að hitta félaga sína aftur við bæinn Hrafnbjörg í Svínadal klukkan 16. Þeir skiluðu sér hinsvegar ekki sökum þess að þeir týndu áttum í þokuslæðingi. Að sögn lögreglu voru mennirnir ekki með GPS-staðsetningartæki á sér.

Mennirnir voru kaldir og hraktir þegar þeir fundust enda hafði gengið á með rigningu, en að öðru leyti voru þeir heilir á húfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert