Meintur nauðgari úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28. mars

Maður sem grunaður er um að hafa nauðgað ungri konu á salerni í kjallara Hótels Sögu um helgina hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28. mars. Maðurinn, sem er 18 ára gamall, var yfirheyrður í dag með aðstoð túlks en maðurinn er erlendur ríkisborgari. Fleiri hafa verið yfirheyrðir vegna málsins í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert