Handtekinn eftir þriggja bíla árekstur

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn eftir þriggja bíla árekstur í Breiðholti síðdegis í gær en hann er grunaður um ölvunarakstur. Að sögn lögreglu voru tildrög slyssins þau. að tveir bílar voru kyrrstæðir aftan við strætisvagn sem hafði numið staðar við biðskýli. Bíll mannsins kom þá aðvífandi og lenti aftan á öðrum bílnum sem kastaðist síðan áfram á þann þriðja.

Bíll tjónvaldsins skemmdist sýnu mest en hann vildi alls ekki láta kalla til lögreglu og forðaði sér af staðnum. Við það mátti litlu muna að þunguð kona yrði fyrir bíl hans en konan var ökumaður bílsins sem maðurinn ók á.

Nokkur vitni voru að atvikinu og því fékk lögreglan góða lýsingu á manninum, sem fannst á öldurhúsi skömmu síðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert