Dögun hefur ákveðið að bjóða fram til bæjarstjórnar á Akureyri.Var þetta staðfest á fundi félagsmanna í gær. Hlín Bolladóttir bæjarfulltrúi hefur ákveðið að gefa kost á sér til að leiða lista Dögunar.
Uppstillingarnefnd er að störfum og er henni falið að leggja tillögu að skipan framboðslista fyrir félagsfund 1. maí, segir í fréttatilkynningu.