Viðreisn og Neslistinn bjóða fram sameiginlegan lista í bæjarstjórnarkosningunum á Seltjarnarnesi sem fram fara í næsta mánuði.
Efstu tvö sæti listans skipa Karl Pétur Jónsson varabæjarfulltrúi og Hildigunnur Gunnarsdóttir, námsráðgjafi við Kvennaskólann.
Framboðslistinn:
Karl Pétur Jónsson varabæjarfulltrúi
Hildigunnur Gunnarsdóttir menntunarfræðingur
Björn Gunnlaugsson, kennari og verkefnastjóri hjá Kópavogsbæ
Rán Ólafsdóttir laganemi
Oddur J. Jónasson þýðandi
Margrét Hugrún Gústavsdóttir blaðamaður
Ragnar Jónsson rannsóknarlögreglumaður