Um 20.300 manns hafa kosið utan kjörfundar á landinu öllu samkvæmt upplýsingum frá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafa 13.296 kosið hjá embættinu.
Í dag kusu 2.318 manns í utankjörfundaratkvæðagreiðslu sem fer fram í verslunarmiðstöðinni Smáralind.
Utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosninganna fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins á kjörstað í Smáralind lauk klukkan tíu í kvöld en kjósendur búsettir á landsbyggðinni geta greitt atkvæði sitt utan kjörfundar í Smáralind á morgun frá klukkan 10 til 17.