Kjörstjórn í Fjarðabyggð hefur ákveðið að endurtelja atkvæðin í sveitarstjórnarkosningunum frá því í gær.
Þetta var samþykkt á fundi kjörstjórnar í morgun. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær talningu lýkur en væntanlega verður það síðdegis. Tilkynnt verður um niðurstöðu endurtalningar á Facebook-síðu yfirkjörstjórnar: facebook.com/xfjardabyggd.
Einungis munaði einu atkvæði að meirihlutinn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins héldi velli í Fjarðabyggð. Þannig vantaði Ragnar Sigurðsson, þriðja mann á framboðslista sjálfstæðismann, eitt atkvæði til þess að ná kjöri. Ragnar dettur þar með úr bæjarstjórn.