Kvennalandsliðið í knattspyrnu skilaði sér á tíunda tímanum í gærkvöldi, að staðartíma, á leikstað í Znojmo í Tékklandi.
Þar er fram undan hjá liðinu leikur á móti Tékklandi í undankeppni HM á þriðjudaginn. Landsliðið flaug frá Frankfurt til Vínar undir kvöld í gær og kom með rútu til Znojmo sem tók um eina og hálfa klukkustund en bærinn er sem sagt nærri landamærunum að Austurríki.
Landsliðið æfði í Wiesbaden í gærmorgun áður en farið var til Tékklands en fékk frí frá æfingum í dag. Fundahöld eru þó fram undan hjá þjálfurum og leikmönnum í kvöld.
Á morgun mun liðið æfa seinni partinn á leikvanginum þar sem leikurinn við Tékka fer fram klukkan 16 að íslenskum tíma á þriðjudag.