Sindri Sverrisson í Andorra,
Erik Hamrén landsliðsþjálfari og Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í Andorra la Vella nú síðdegis, daginn fyrir leik Andorra og Íslands í fyrstu umferð undankeppni EM í knattspyrnu.
Leikur Andorra og Íslands hefst kl. 19.45 að íslenskum tíma annað kvöld eða kl. 20.45 að staðartíma. Ísland mætir svo Frakklandi í París á mánudagskvöld en í riðlinum eru einnig Albanía, Tyrkland og Moldóva. Tvö efstu liðin komast á EM 2020 sem fram fer víða um álfuna.
Hér að neðan má lesa það sem fram kom á fundinum.
Blaðamannafundur Íslands í Andorra | Opna lýsingu Loka | ||
---|---|---|---|
kl. 0 Textalýsing Góðan daginn! Sindri Sverrisson heilsar ykkur frá Andorra la Vella, höfuðborg Andorra, eftir góðan rúnt um Píreneafjöllin frá Peralada á Spáni þar sem íslenska liðið hefur dvalið frá því á mánudag. Fram undan er blaðamannafundur með þeim Erik Hamrén og Aroni Einari Gunnarssyni. | |||
Augnablik — sæki gögn... |