Íslendingar mæta Serbum í hreinum úrslitaleik um að komast áfram í milliriðil á Evrópumótinu í handknattleik í dag en flautað verður til leiks í Split klukkan 17.15 að íslenskum tíma.
Spánverjarnir Oscar Raluy Lopez og Angel Sabroso Ramirez dæma viðureignina í dag en þeir hafa áður dæmt leiki hjá Íslendingum. Þeir dæmdu til að mynda fyrri viðureign Íslands og Þýskalands í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik sem fram fór í Laugardalshöllinni í mars 2011 og þeir dæmdu leik Íslands og Ungverjalands í Norrköping á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð það sama ár.
Hvað þýða úrslitin fyrir Ísland?