Chelsea tekur á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Stamford Bridge klukkan 15 í dag.
Leikurinn er hluti af sautjándu umferð deildarinnar en Chelsea hefur aðeins verið að hiksta undanfarið og hefur tapað þremur af síðustu fimm deildarleikjum sínum. Lærisveinar Franks Lampards eru engu að síður í 4. sæti með 29 stig, þremur stigum á eftir Englandsmeisturum Manchester City. Bournemouth er í 15. sæti með 16 stig, stigi frá fallsæti.