Lewis Hamilton (1:34,994) settist í efsta sæti lista yfir hröðustu hringi á seinni æfingunni í Sepang, en þar fer í Malasíukappaksturinn fram á sunnudaginn kemur. Var hann 0,2 sekúndum fljótari en liðsfélagi hans hjá Mercedes, Nico Rosberg (1:35,177).
Rosberg ók hraðar á fyrri æfingunni en Hamilton náði undirtökunum á þeirri seinni. Þriðja besta tímann þegar upp var staðið átti Sebastian Vettel (1:35,605) hjá Ferrari, en hann var tæplega 0,7 sekúndum á eftir Hamilton.
Kimi Räikkönen (1:35,842) hjá Ferrari átti fjórða besta tímann og Max Verstappen (1:36,037) hjá Red Bull þann fimmta besta.
Í sætum sex til tíu - í þessari röð - urðu Sergio Peres (1:36,284) hjá Force India, Fernando Alonso (1:36,296) hjá McLaren, Daniel Ricciardo (1:36,337) hjá Red Bull, Nico Hülkenberg hjá Force India(1:36,390) og Jenson Button (1:36,715) hjá McLaren.
Þess má svo geta, að milli æfinga dagsins tókst vélvirkjum Renault að endurbyggja bíl danska ökumannsins Kevin Magnussen sem laskaðist er í honum kviknaði snemma á fyrstu æfingunni. Setti hann 19. besta hringinn af 21 eftir 19 hringja akstur.