Sebastian Vettel hjá Ferrari hafði betur gegn ökumönnum Mercedes á lokaæfingunni fyrir tímatökurnar í Melbourne.
Besti hringur Vettels mældist á 1:23,380 en hálfri sekúndu lengur varð Valtteri Bottas. Lewis Hamilton, sem hraðast ók á báðum æfingum í gær varð þriðji á 1:23,870, eða 11 þúsundustu úr sekúndu á eftir liðsfélaga sínum, Bottas.