Formúlan meðal íþrótta sem sagðar eru gefa upp ýktar áhorfstölur

Fullyrt er að jafnt í formúlu-1 sem fótbolta séu birtar …
Fullyrt er að jafnt í formúlu-1 sem fótbolta séu birtar tölur um sjónvarpsáhorf stórlega ýktar. ap

Formúla-1 er meðal íþróttagreina sem gefa upp hærri tölur fyrir sjónvarpsáhorfs en raunin er, líkast til að laða velborgandi styrktarfyrirtæki að íþróttinni og halda uppi háu verði sem sjónvarpsstöðvar þurfa borga fyrir að sýna frá keppni.

Þetta eru niðurstöður rannsóknar breska dagblaðsins The Independent, og skýrt er frá í frétt akstursíþróttafréttastofunnar GMM Capsis International. Blaðið nefnir sem dæmi, að af formúlunnar hálfu hafi verið haldið fram að 354 milljónir manna hefðu horft á útsendingu frá lokamóti vertíðar síðasta árs, í Brasilíu. Sé það fjórum sinnum hærri tala en hægt sé að festa hendur á.

Óháð greining fyrirtækisins Initiative Sports Futures (ISF) hafi leitt í ljós, að einungis 83 milljónir manna hafi í raun horft á Felipe Massa hjá Ferrari aka til sigurs í mótinu í Interlagos-brautinni í Sao Paulo í október sl.

Að sögn The Independent eru tölur um sjónvarpsáhorf frá íþróttaviðburðum stundum “stórlega ýktar” og í öðrum tilvikum einfaldlega “ágiskun”. Í þeim felist jafnvel oft uppsafnað áhorf á endurteknar sýningar og jafnvel þriggja mínútna samantektir.

ISF styðst einvörðungu við áreiðanlegar mælingar og viðurkenndar mæliaðferðir sem byggja á “meðaláhorfi” fremur en hámarkstölum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert