Lárus Orri í raðir ÍA

Lárus Orri Sigurðsson
Lárus Orri Sigurðsson mbl.is

Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum leikmaður og þjálfari Þórs frá Akureyri, hefur tilkynnt félagaskipti í ÍA. Lárus lék með yngri flokkum ÍA þar til hann var 16 ára gamall og í samtali við mbl.is í dag sagði Lárus að góðir vinir hans á Akranesi hefðu óskað eftir því að hann yrði til taks ef þeir þyrftu á aðstoð að halda á næstunni.

„Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri ÍA og Þórður Þórðarson þjálfari liðsins eru æskuvinir mínir og þeir höfðu samband við mig og báðu mig um að vera til taks ef liðið þyrfti á mér að halda. Það eru meiðsli hjá varnarmönnum ÍA og ég er bara glaður og ánægður að þeir skyldu hafa samband við mig. Vonandi get ég hjálpað mínu gamla félagi, “ sagði Lárus í dag.

Nánar um málið í Morgunblaðinu á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert